Réttaröryggi í stafrænu umhverfi
“Réttaröryggi í
staðfrænu umhverfi”
JUDICA gætir réttinda og veitir lögfræðiaðstoð á sviði upplýsingatækniréttar. Stofan aðstoðar fyrirtæki og opinbera aðila meðal annars varðandi gagnadrifna markaðssetningu, gagnavinnslu, gagnaöryggi og gagnaleka, auk gervigreindar, lénadeilna og fjarskipta- og róbotaréttar.
Þá býr JUDICA yfir sérþekkingu á gerð viðbragðsáætlana vegna netárása og veitir aðstoð þegar kemur að netsvikum og öðrum netbrotum. Einnig nær sérhæfing stofunnar til rafrænna viðskipta, samningsgerðar, hugverkaréttar í stafrænu samhengi og gerð upplýsingatækni samninga (t.a.m. SaaS og leyfis-samninga) og staðlaðra viðskiptaskilmála.
Auk þess veitir Judica lögfræðiaðstoð fyrir þolendur hefndarkláms og rafræns ofbeldis. Þar grípur stofan til fljótvirkra aðgerða. kröfugerðar og samskipta við lögreglu til að knýja á um að myndefni og persónuupplýsingar séu fjarlægðar af vefsíðum og samfélagsmiðlum.
Loks aðstoðar stofan einstaklinga og fyrirtæki sem hafa orðið fyrir barðinu á auðkennisþjófnaði, skjalafalsi eða fjársvikum á netinu. Þar er aðstoðað við að rekja slóðina, tryggja sönnunargögn í stafrænu umhverfi og sækja rétt og bætur í samstarfi við viðeigandi yfirvöld og fjármála-stofnanir, auk þess að tryggja að farið sé að lögum um persónuvernd (GDPR) og kröfum um notkun vafrakaka (e. cookies).

