I. Hver er réttur þinn?
Hefur þú einhvern tímann keypt stakt skjal eða vöru á netinu fyrir lága upphæð, t.d. 0.99 EUR, en uppgötvaðir viku síðar að þú varst óafvitandi komin(n) í dýra mánaðarlega áskrift, þegar vefsíðan dróg 49.99 EUR af bankareikningi þínum. Þetta fyrirbæri er kallað „áskriftargildra“ og byggir oft á villandi hönnun, svokölluðum dark patterns. Að neðan eru 12 algengar tegundir af villandi hönnun:
Þegar ókeypis prufutímabili lýkur og greiðsla er gjaldfærð án viðvörunar, eða uppsögn er gerð óhóflega flókin.
Þjónusta sem er hönnuð þannig að það er mjög auðvelt að skrá sig, en nánast ómögulegt að skrá sig úr.
Viðmót sem stýrir athygli viljandi að valkosti sem er dýrari eða hagstæðari fyrir fyrirtækið.
Óvænt gjöld sem birtast fyrst á allra síðasta stigi kaupferlisins þegar neytandinn er orðinn líklegri til að kaupa.
Aukahlutum eða tryggingum er laumað sjálfkrafa í körfuna; notandinn þarf sérstaklega að haka við til að hafna þeim.
Falskar upplýsingar um tímafresti eða takmarkað framboð til að skapa gervipressu og knýja fram fljótfærnisleg kaup.
Notandi framkvæmir aðgerð út frá loforði viðmótsins, en niðurstaðan verður allt önnur og iðulega óhagstæðari.
Notkun á ruglandi orðalagi eða tvöföldum neitunum til að gabba notandann til að svara öðruvísi en hann ætlaði sér.
Neytandinn er neyddur til að deila gögnum eða stofna aðgang til að geta nýtt sér grunneiginleika þjónustunnar.
Framsetning þar sem raunverulegt heildarverð er vísvitandi gert óskýrt til að rugla neytandann í ríminu.
Viðmót sem tælir notendur til að deila mun meiri persónuupplýsingum en þeir ætluðu sér.
Uppsetning þar sem truflunum (t.d. sprettigluggum) er kastað í veg fyrir notandann til að hindra hann í að klára aðgerð.
Auglýsingar sem eru hannaðar til að líta út eins og eðlilegt efni vefsíðunnar, til að plata notendur til að smella.
Þjónusta sem krefst aðgangs að tengiliðum notandans til að senda ruslpóst eða skilaboð í hans nafni án samþykkis.
14 daga uppsagnar og endurgreiðslureglan
Í núverandi stafræna umhverfi er mjög algengt að neytendur séu tældir til viðskipta með loforði um lágt einskiptisgjald, á meðan raunverulega skuldbindingin er falin. Ljóst er að ef netverslunin gerir ráð fyrir minni uppsagnarfrest en 14 dögum og sendir þér rukkun, þá getur þú krafist endurgreiðslu byggt á rétti til uppsagnar og endurgreiðslu innan 14 daga. Í þessari grein er sjónum beint að réttarstöðu kaupanda eftir 14 daga frestinn. Er það markmið þessarar greinar að netnotendur séu upplýstir um réttarstöðu sýna þegar þeir lenda í áskriftargildrum og geta sjálfir reynt að endurheimta þá óvæntu fjárhæð sem netverslun dróg af þeim, enda er í þessum tilvikum almennt um svo smávægilegar upphæðir að ræða að það myndi ekki borga sig að leita til lögmanns.
Skilyrðið um óvænt áskriftarákvæði
Áskriftagildrur er einfalt og skemmtilegt álitamál á sviði upplýsingatækniréttar, þar sem reynir á kjarna atriði samningaréttar, þ.e. hvort samningur um áskrift komst í raun á milli kaupanda vöru og netverslunar. Er þá gengið út frá því að kaupandi vissi ekki af því að hann var að gangast undir samning um mánaðarlega greiðslu fyrir þjónustu, þ.e.a.s. slíkt var honum óvænt, skilmálar áskriftarinnar og kostnaður voru faldir í kaupferlinu t.d. með notkun villandi hönnunar. Þannig er látið hjá líða að veita sanngjörnum notanda áberandi upplýsingar um áframhaldandi fjárhagslega skuldbindingu. Inn í þetta mat spila neytendareglur evrópuréttar. Verður betur farið út flóknari álitamál á því sviði í næstu greinum.
II. Villandi hönnun og sjónsvið neytandans
Hvers kyns endurteknar rukkanir, eins og áskriftargildrur, verða að vera skýrt tilgreindar við færsluna sjálfa. Samningur sem verður til fyrir tilstilli villandi framsetningar er ekki lagalega bindandi.
Dómstólar hafa tekið af skarið um þetta. Vísast í þessu samhengi til dómsins Berman v. Freedom Financial Network, LLC, þar sem fram kemur að til þess að upplýsingagjöf teljist lagalega bindandi verði hún að birtast í leturstærð og lit sem myndar skýra andstæðu við bakgrunninn, auk þess að vera ekki umkringd öðrum litríkum eða truflandi þáttum sem draga athygli frá mikilvægum skilmálum.
Sömuleiðis skiptir staðsetning textans öllu máli, sbr. Sellers v. JustAnswer LLC. Þar gagnrýndi dómstóllinn harðlega uppsetningu vefsíðu þar sem upplýsingar um mánaðarlegt gjald voru í smáu letri utan sjónsviðs aðalgreiðsluupplýsinganna.
III. Skilmálar „neðan við skjálínu“
Sömu athugasemdir eiga við um mörg kaupferli þar sem mikilvægar upplýsingar eru geymdar neðarlega á síðunni. Þegar vefsíðan hefur hlaðist sér notandinn ekki mikilvæga skilmála nema hann skruni niður síðuna (e. scroll down).
Þar sem hægt er að ljúka kaupum án þess að skruna niður, teljast skilmálarnir ekki bindandi. Þetta var staðfest í máli Specht v. Netscape Communications Corp., sem sló því föstu að skilmálar sem staðsettir eru „neðan við skjálínu“ eru óskuldbindandi ef notandi getur lokið viðskiptum án þess að sjá þá.
IV. „Pöntunartakka-reglan“ og evrópskur neytendaréttur
Fyrir íslenska neytendur og fyrirtæki á Evrópska efnahagssvæðinu gilda einnig strangar reglur. Samkvæmt neytendaréttartilskipun ESB gildir svokölluð „pöntunartakka-regla“. Hún kveður á um að netverslanir verði að tryggja að neytandinn geri sér fulla grein fyrir því að hann sé að gangast undir greiðsluskyldu á því augnabliki sem pöntun er staðfest.
Evrópudómstóllinn staðfesti í máli Fuhrmann-2-GmbH að einungis eigi að líta til orðanna á takkanum sjálfum. Ef á takkanum stendur einfaldlega „PayPal“ eða „Greiða með korti“, eins og á myndinni í kafla II, án þess að fram komi að um dýra, endurtekna greiðslu sé að ræða, er samningurinn ógildur.
Hvað gerir JUDICA?
Við hjá JUDICA sérhæfum okkur í réttaröryggi í stafrænu umhverfi. Ef þú eða þitt fyrirtæki hafið lent í áskriftargildrum eða villandi kaupferlum er mikilvægt að vita að lögin og alþjóðleg dómaframkvæmd standa með neytandanum. Villandi hönnun og dulin upplýsingagjöf leiða oft til þess að kröfur séu ólögmætar og að þú eigir rétt á fullri endurgreiðslu.
Ert þú með erindi tengt netverslun eða villandi viðskiptaháttum? Sendu okkur erindi og við aðstoðum þig við að sækja þinn rétt.

